|
|
03.10.2006 14:37:52 / gibban
Hæ hæ
Undirrituð hefur nú
gefist upp og gefið skít í þessa síðu. Þetta Central dót
hefur tekið upp á því að úthýsa nokkrum þeirra pistla er ég hef
ritað. Síðast í gærkvöldi setti ég inn pistil og gekk það
vel. Svo í morgun þegar ég ætlaði að setja inn annan pistil
þá var sá frá því í gær horfinn og engin leið að setja inn
nýjan!!! Þessi sjálfstæða ritskoðun Centralsins fellur mér
ekki í geð og því hef ég útbúið mér nýjan vettvang til að tjá
skoðanir mínar á, jafnframt því sem stöku reynslusögum verður komið
fyrir þar og öðru misgáfulegu efni. Sú síða er þó enn í þróun
og stöðugri vinnslu. Vil ég taka það fram að allar ábendingar
varðandi hana eru vel þegnar og er afar handhægt að nota
"athugasemda" dálkinn til þeirra verka. Er hann staðsettur
neðst í hægra horni hvers pistils
Yfir og út
Gígjan
gibban.bloggar.is
»
28.09.2006 14:21:12 / gibban
Hæ hæ og sorrý letina :þ Það er bara búið að vera skrambi mikið að
gera hjá minni og hafa skrif hingað inn einhvernvegin ekki náð að
komast inn á forgangslistann... Kannski maður ætti eitthvað að
endurskoða forgangslistann :  : Um síðustu helgi var ég að ljúka
mínu tímabili í umsjón sameignarinnar, ryksugaði, pússaði, henti
dagblöðum og skúraði (allt samkvæmt nákvæmum leiðbeiningum
leigusalans) Þar sem ég kláraði Ajaxið í djöfulganginum ákvað ég að
láta húsfélagsgaurinn vita svo að næsti myndi ekki þurfa að skrúbba
sápulaust. Svakalega brá mér þegar náunginn kom til dyra en hann
var barasta butt naked!!! Hann sá þó sóma sinn í að reyna að hylja
nekt sína með því að skýla sér á bak við hurðina að mestu. Það
gerði þó lítið gagn þar sem að við hliðina á honum var mannhæðarhár
spegill!!! Því fóru nekt náungans og rassahárin ekkert á milli mála
(ekki beinlýnis fögur sjón)! Mér varð svo um við þetta að ég varð
eins og kleina og vissi ekkert hvert ég átti að beina augunum,
romsaði því erindinu út úr mér í einni bunu og forðaði mér af
vettvangi. Ég var í nettu sjokki eftir þetta atvik og hálf flökurt
en vil þó nota tækifærið og ítreka það að blygðunarkennd mín er
ekki auðsærð! Mér er spurn; Hafi náunginn haft félagsskap af hverju
í andskotanum kom hann þá til dyra? Hafi hann hins vegar verið einn
af hverju í helvítinu fór hann ekki í föt áður en hann kom til
dyra??? One wonders! Fá kallar kannski eitthvað út úr því að koma
til dyra á slátrinu???? Segjum þetta gott í bili Gígjan segir yfir
og út
»
01.09.2006 12:31:27 / gibban
Nú er maður fluttur í borgina og ég fíla það í tætlur!! Það er búið
að vera haugur að gera hjá mér, mest brasið hefur þó verið í því að
koma sér fyrir, íbúðin sem ég er nú komin í er töluvert lítil. Ég
er ekki að reyna að halda því fram að ég hafi búið í einverju risa
pleisi en boj ó boj, gamla íbúðin var þó ansi mikið stærri en
þessi. En til að koma öllu fyrir þá er ég búin að fara ófáar
ferðirnar í IKEA og mubla upp með góðum hirslum. Get sko svarað
spurningum ykkar varðandi verð og vöruúrval þeirrar verslunar, og
það jafnvel betur en sjálfur IKEA bæklingurinn... En boj Ó boj...
bókakostnaður úfff, eins gott að ég seldi íbúðina mína á toppverði,
var að kaupa restina nú á miðvikudaginn, var það ekki nema 42.050
íslenskar nýkrónur! Áður var ég búin að punga út ca.16.000 kalli.
Samtals er þetta því bara helvítis hellingur! Jæja, ætla að segja
þetta gott í bili. Er að fara til Sýslumannsins til að láta
þinglýsa húsaleigusamningnum svo maður geti farið að fá einhverjar
húsaleigubætur... Heyrumst bráðlega aftur  G
»
18.07.2006 15:41:59 / gibban
Vá hvað það er búið að vera mikið að gera hjá mér! Hefði ekki trúað
því hvað það getur verið mikið bras við að vera hættur í vinnunni
og með flutninga yfirvofandi! Vá! maður er ekki einu sinni á
koddanum fram að hádegi, hvað þá langt fram yfir það. Í gær var mín
á fullu með Homernum að henda upp þeim hurðum sem vantaði í
stigaganginn, þannig að nú á maður bara smávegis frágang eftir í
því basli svo maður geti skilað honum af sér án mórals, vantaði
bara smáhluti úr Húsasmiðjunni og þá er allt klárt á þeim
vettvanginum  ...loksins! Fór svo í hádeginu með Heiði, Sólveigu
og Sóley á Bautann, Gerða frænka kom líka og var þetta ýkt nice.
Gaman að hitta gellurnar yfir súpu, salati og slúðri. Ég má
eiginlega ekkert vera að þessu bulli núna. Segi þetta gott í bili,
reyni svo að henda einhverju gáafulegu inn við tækifæri. Eða bara
einhverju svona til að segja eitthvað... Au revoir Gígjan
»
12.07.2006 20:51:04 / gibban
Þegar ég vaknaði í morgun þá var barasta ekkert að gerast. Bjóst þó
við kalli til að skoða íbúðina kl.11. Stuttu áður en hann mætti á
svæðið hringdi fasteignasalinn í mig og sagði að mér hefði boðist
óformlegt tilboð. Ég varð bara kát og glöð með að eitthvað væri að
fara í gang. Svo kom kallinn að skoða, fékk lítið feedback frá
honum nema þegar hann kvaddi þá talaði hann um að þetta væri þriðja
íbúðin sem hann skoðaði um morguninn og að hún bæri af hinum  Svo
var ég stödd hjá systur minni upp úr hádegi þegar fasteignasalinn
hringdi aftur, hafði þá kallinn frá því um morguninn brugðist
skjótt við og sent inn formlegt tilboð, öllu hærra en hitt og mín
farin að brosa svo að sást í tennur! Bað salan mig um að líta við
upp úr kl.16. Þegar ég kom þar að hafði fyrsta tilboðið hækkað enn
meira og ég brosi nú allan hringinn og lít nánast út eins og
mongólíti... Sjálf hef ég ekkert mótframboð þurft að gera, hinir
bara bítast um slotið... Þegar ég fór af sölunni áðan var verið að
senda emil á þann lægri til að láta vita að hann hefði verið
yfirboðinn. Hver veit hvað geris en eitt er allavega víst. Íbúðin
er svo gott sem SELD Í síðustu viku var ég farin að þróa með mér
magasár af áhyggjum um að geta ekki selt. Fór meira að segja í
bankann til að ræða lánamöguleika, ætli ég fari ekki þangað afur í
kringum helgina til að ræða ávöxtunarmöguleika  Mér er svo
gasalega létt yfir þessu að ég fagnaði með því að fylla Focusinn af
bensíni!!! Missti mig þó ekki alveg í eyðslunni, dældi nefnilega
sjálf  Bless í bili Gígjan
»
11.07.2006 16:03:43 / gibban
Jæja þá er maður búinn að taka sér smá pásu frá ritum á þessa
blessuðu síðu og tími til kominn að bretta upp ermarnar og byrja
pikkið Ýmislegt hefur gengið á hjá mér síðan ég smellti mér inn
síðast. To sum up: • Tók við íbúðini í Borginni. Aldrei séð annan
eins skít!!! Var þessi annars sæta íbúð svo ógeðslega drullug að ég
fór sérstaka ferð til Reykjavíkur bara til að þrífa, stoppaði þar í
tvo sólarhringa, skrúbbaði, pússaði og sjænaði. Var djöfulgangurinn
svo mikill að væri ég karlmaður þá hefði með sanni mátt segja að ég
hefði verið pungsveitt! Náði samt ekki að klára verkið. Svo
svakalegt var þetta. (þess skal jafnframt getið að ég þoli mikinn
skít) • Setti íbúðina á sölu, sjá nánar á byggd.is Er enn óseld og
áhugasamir hvattir til að gera tilboð, helst hrikalega hátt ;o) •
Blessuð teppin loksins komin á sinn stað í fjandans stigaganginum,
smáhlutir eftir, hlýtur að klárast áður en ég fæ taugaáfall yfir
þessu bjevítans bulli! • Vann síðustu vaktina mína í gær!!! Á
reyndar enn eftir að vinna um verslunarmannahelgina en þar sem það
verður allt í aukavinnu og sjálft fangelsið lokað þá telst það
varla með. Tilhugsunin um það að vera hætt er dálítið ógnvænleg
(eða hræðileg eins og ég mismælti mig óvart) og ég á eftir að sakna
þeirra alveg ótrúlega. Þá á ég að sjálfsögðu við vinnufélagana,
fanganna mun ég ekkert sakna! • Magnús er farinn... Já ég varð að
láta hann frá mér. Gat ekki fengið það af mér að henda honum enda
frábær hirsla. Pabbi fór með hann upp í nytjagám fyrir mig. Nú er
ég hins vegar farin að huga að flutningunum fyrir alvöru, úff ma´r!
Djöfull er mikið af rusli og drasli í öllum skúmaskotum. Til dæmis
í honum Magnúsi fann ég fullt af andskotans drasli sem ég skil
ekkert í að ég hafi ekki hent beint í ruslið. Þar fann ég líka
hluti sem voru búnir að vera týndir árum saman!!! Greinilegt að
Magnús hafði oft verið í hlutverki “góða staðarins” til að passa
hluti vel sem ekki máttu týnast en gleymdust svo. Já, Magnúsar
verður sko sárt saknað! Vona bara að hann muni verða hamingjusamur
á nýju heimili. Well, má ekki vera að þessu bulli lengur, nóg að
gera. Svo má maður heldur ekki klára allt sem maður hefur að segja
í einum pistli. Sérstaklega ekki ef maður hyggst herða sig í
skrifunum!!! Peace out Gígjan
»
22.05.2006 16:30:46 / gibban
Er meðlimur í einhverjum viðhorfahópi hjá
Gallup. Virkar
þannig að annað slagið fæ ég sendar kannanir á mailið hjá mér og
get í staðin unnið til verðlauna. Ekkert mál og oft bara dálítið
gaman að þessum könnunum. Svo núna í síðustu viku þegar
ég var á næturvakt þá sá ég að ný könnun var komin á póstinn hjá
mér. Renndi í
fljótheitum yfir formálann, þar var tekið fram að það tæki á
bilinu 8 til 10 mín. að fylla könnunina út. Því gaf ég mér góðan tíma,
kláraði að læsa piltana inni, pissaði, sótti mér kaffi og kom
mér svo fyrir framan við skjáinn tilbúin í miklar vangaveltur og
spögulasjónir.
Könnunin var um jafnrétti. Svo var hafist
handa.
Fyrsta spurning;
Hver er hjúskaparstaða þín?
Gift/ur
Í sambúð
Fráskilin/n
Einhleyp/ur
Ég
hakaði í viðeigandi reit. Samstundist flettist á næstu
síðu, þar stendur: Þú
hefur lokið þátttöku.
Kærar þakkir............!!!!!!!!!!!
Hvaða helvítis djöfulsins jafnrétti er
þetta? Er þetta
ekki bara klárt dæmi um mismunun milli einstaklinga og
paralinga 
Neita því ekki að ég móðgaðist hreinlega (og þarf nokkuð
til...)
Andskotans melirnir...........
»
20.05.2006 22:28:41 / gibban
Síðasta fimmtudagskvöld, þegar ljóst varð að Silvía Nótt
kæmist ekki upp úr undankeppni Júróvisjón byrjaði að snjóa hér á
norðurlandinu.
Síðan þá er búinn að vera skíta-djöfuls-kuldi og drullu
veður. Tel ég að
Guðirnir hafi verið að gráta yfir heimsku
mannkyns.
Allavega yfir heimsku hinna Evrópuþjóðanna.
Síðan lögin í keppninni fóru að heyrast var strax annað lag
sem fangaði athygli mína og tók ég ákvörðun um að það lag yrði
svona til vara ef Silvía kæmist ekki áfram. Spreðaði meira að segja einu
atkvæði á það í undankeppninni. Nú eru úrslitin ljós og vann
þetta “vara lag” með yfirburðum.
...og það sem
meira er þá hætti snjókoman þegar tíðindin urðu lýðnum
ljós. Því er
bara að bíða og sjá; var það Júróvisjón sem Guð var að vekja
athygli á með þessu ankanalega veðri?
En engu að
síður: TIL HAMINGJU LORDI
Chao
G
»
20.04.2006 01:07:21 / gibban
»
14.04.2006 07:24:48 / gibban
...ákvað ég að lífga örlítið upp á síðuna. Enda þessi
brúni meira bara svona vetrar-mode En það er búið að vera
í nógu að snúast hjá mér undanfarið. Ákvað að hætta við þetta
geðdeildardæmi og fara bara að vinna í íbúðinni minni, svona áður
en ég set hana á sölu. Get ég núna loksins sagt með stolti að
eldhúsið mitt er ekki lengur hlandgult og horgrænt á litinn
Þvílíkur munur! Bitarnir í stofuloftinu eru ekki
lengur svartir og parketlistar eru komnir á hluta íbúðarinnar,
verður klárað eftir páskana enda við bæði á vaktinni alla dagana (
þoli ekki fólk sem fær páskafrí... )
Það má því bara með sanni segja að ég hafi bara snúið mér að næsta
verki þegar hurðarhelvítin fuckuðust upp...
Systir bauð mér á Litlu - Hryllingsbúðina í vikunni og skemmti
ég mér alveg konunglega. Fór Gói ( man ekki alveg hvað hann
heitir í alvörunni ) á kostum sem Baldur. Þvílíkt gaman að
fara svona í leikhús...
Well, nenni ekki að skrifa meira í bili. Er að spá í að
taka því rólega á vaktinni í dag enda gríðarlegt álag í dag
Heil 90%...
Yfir og út
G
»
04.04.2006 17:22:01 / gibban
Held ég þurfi að
hvíla mig inni á geðdeild í nokkrar vikur Get svo svarið það að ég held að
ég sé farin yfirum! Djöfulsins helvítis andskotans
fockings fuck-face og tussusnúðar Ef það er ekki eitthvað eitt þá
er það bara eitthvað annað.... Er virkilega að velta
því fyrir mér hvort ég eigi ekki bara að hætta við að setja upp
nýja hurð inn í íbúðina hjá mér og henda bara upp sturtuhengi í
staðin 
Loksins þegar maður var búinn að sjatla alla í ganginum til að taka
eins eldvarnarhurðir, ( tók á ) mæla upp, leggja inn pöntun og fá
alla til að mæta í Húsasmiðjuna til að borga ( reyndar einn skussi
), semja við smið, hringja í tepparann og fá hann til að koma bara
strax eftir páska ( svo að allt verði nú orðið klárt fyrir hann )
Allt klappað og klárt og eins og blómstrið eina. Ætluðu Húsasmiðjumenn meira að
segja að senda okkur hurðirnar hingað heim í lok dagsins í dag eða
í fyrramálið. Svo
þegar ég var að fara út núna rétt áðan þá mætti ég einum íbúanum
sem var að koma úr Húsó. Færði hann mér þær fréttir að
eitthvað hefði fokkast upp og beyki hurðirnar ekki til í landinu,
einhver misskilningur í tölvunum eða eitthvað
álíka!!! Sagði
hann líka að þær kæmu ekki til landsins fyrr en
14.apríl
GGGGGAAAAAAAAAARRRRGGGGG
og ég sem hafði hringt í tepparann örfáum mínútum áður en þessar
fréttir bárust þannig að ég þarf að hringja í hann aftur til að
seinka honum enn meira. Gaman gaman 
Well, ætla að taka
pirringinn út annarsstaðar
Gígja geðveika
kveður að sinni
»
04.04.2006 02:55:52 / gibban
Sá í Kastljósinu um daginn myndbandið með Silvíu Nótt og
fannst það nokkuð gott, eiginlega bara alveg helvíti
magnað. Allt síðan
þá hefur mig þó langað til að sjá það aftur og hef líka heyrt í
nokkrum sem misstu af frumflutningnum og voru helst til svekktir
með það. Nú áðan
frétti ég af því á www.kvikmynd.is smellti ég mér því
þangað inn og tékkaði á því aftur, var það jafnvel enn fyndnara
en mig minnti svo ég skoðaði það bara enn einu
sinni. Á síðunni
má líka sjá viðtal sem tekið var við drottningu Íslands hjá
MTV í Japan og fleira fróðlegt 
Fannst ég bara verða að koma þessum fréttum til þeirra sem misstu
af og voru fúlir með það.
Annars hef ég svo sem ekkert að segja enda ekki upplifað neitt
markvert undanfarna daga. Bara svona vinna/sofa/éta mode í
gangi, er meira að segja á aukavakt núna og hálf leiðist enda
ekkert í gangi nema að leika sér í tölvunni. Frekar pirrandi þó að komast ekki
allra sinna leiða á netinu þar sem alltaf er verið að loka fleiri
og fleiri skemmtilegum síðum. Þoli ekki þegar ACCESS
DENIED poppar upp með eldrauðum stöfum og í bláum
ramma.....
frekar pirrandi.
En well, er að spá í að hætta þessu rausi um ekki neitt og fara að
skjóta kúlur á www.leikjanet.is sem er síðan mín um
þessar mundir, ætla bara rétt að vona að þeir fari ekki að loka
þangað inn enda er þetta nauðsynleg síða til að drepa tímann á
rólegum næturvöktum....
Chao
»
01.04.2006 04:54:05 / gibban
»
30.03.2006 11:58:45 / gibban
Aftur og aftur... þarf maður að moka svalirnar
þessa dagana.
Síðustu þrjá dagana hef ég mokað þær. Við erum ekkert að tala um
nokkur snjókorn sem maður sópar eða blæs í burtu, nei nei við
erum að tala um alvöru magn Hef meira að segja verið í
nettum vanda með að opna svalahurðina nægjanlega til að komast
út til að hefja verkið Svo er þetta svona blautur og
þungur snjór enda hefur hitastigið verið í kringum
núllið. Í gær fór
ég út til að moka upp bílinn en hann hafði staðið á sama
punktinum í þrjá daga og VÁ hvað það var mikil vinna, það er
ekki nóg með að ofan á honum hafi verið 40 – 45 cm. af blautum
og þar af leiðandi afar þungum snjó heldur allt í kring
um hann
líka. Það tók mig
um 30mín. að ná kagganum úr prísundunni. Þegar því var lokið var ég
komin í svo mikinn ham að ég djöflaði skóflunni áfram og mokaði
bara meira. Gerði
þennan fína stíg svo að fólk kæmist inn og út úr stigaganginum
án þess að þurfa að vanda sig við að detta ekki. Þegar það var allt saman orðið
klappað og klárt horfði ég yfir bílastæðið, dró upp símann og
hringdi á mokstur.
Ég lagði ekki í að hand-moka allt stæðið, hefði tekið fjandi
langan tíma og ég sennilega drepist við þá iðju. Okkar menn mættu á svæðið og
voru ekki nema 12 mínútur að hreinsa það svo vel að nú er nánast
sokka færi þarna úti. Á meðan það kyngir niður hér
fyrir norðan þá heyrir maður af moldroki í Biskupstungunum og
sinubruna nálægt Hellu... Hvað með
meðalhófið? Hvar er
sanngirnin????
Maður spyr sig 
En
að öðru. Hér er búið
að vera í nógu að snúast, undanfarnar vikur hef ég nokkrum sinnum
orðið ofsa kát, hef líka orðið fjári pirruð stöku sinnum, hef
einnig fengið nokkur taugaáföll og
þunglyndisköst.
Það sem orsakað hefur þessar miklu og kröftugu geðsveiflur
eru framkvæmdir sem eru á fullu hér í
stigaganginum.
En eins og allir vita sem hingað hafa komið þá var kominn
tími á endurnýjun hans fyrir ca.10 árum en loksins er það að
gerast! Hins
vegar, eins og gerist og gengur eru ekki allir alltaf
sammála, misjafn smekkur manna og stefnt hefur í óefni stöku
sinnum Eftir
eitt stærra pirrings kastið ákvað ég að breyta um taktík,
hætta að fá alla til að vera sammála um öll fjandans
smáatriði og taka bara ákvarðanirnar sjálf, láta svo hina
vita hvernig veggirnir og gólfin í sameigninni yrðu á litin
o.s.frv. Miklu
einfaldara þannig og allir ánægðir Allavega
hefur enginn þorað að koma til mín og segja litina ljóta
eða eitthvað annað ekki nógu gott Kannski
enginn þori að fronta mig En nú erum við farin að
sjá þetta gerast og bráðum verða málaranir búnir með sína
vinnu. Þá er
bara að vona að hægt verði að henda hurðunum upp um leið og
þær detta inn í næstu viku þannig að tepparinn geti mætt og
klárað dæmið  
Skrapp suður um daginn og skellti mér á árshátíð í
Skíðaskálanum í Hveradölum, ýkt gaman. Í sömu ferð leit ég á íbúðina sem
ég er að fara að leigja, þökk sé Dísinni
Rosalega hlakka ég til
að flytja... get ekki
beðið...
Well, er orðið
fjandi langt þannig að ég held ég segi þetta gott í bili
Lifið heil
Gígja
»
28.02.2006 17:21:40 / gibban
»
Síður: 1 2 3 ... 5
|
|